Aðalvalmynd

Auglýsing

Ath!!!!!!!

12. febrúar 2008 klukkan 03:11
Nú er komið að því að einhver heppinn áhöfn getur fengið starfskrafta okkar lánaða yfir sumarið, við erum að leita okkur að góðu plássi í sumar til að geta halað inn seðla. Báðir erum við hörku sjómenn og erum ekki feimnir við að taka til hendinni. Jón er menntaði maðurinn og er hann búinn með fyrsta stigið í vélstjórn og langt kominn með annað stigið. Einar er að vísu ekki með nein réttindi en vinnur það upp með vinnusemi og elju (varð að segja eitthvað um sjálfan mig líka).
Ef einhverjir hafa áhuga þá ekki hika við að hafa samband við okkur með tölvupósti.
einarpe@visir.is
jia@visir.is


Brælan

Bloggen si bitte

11. apríl 2007 klukkan 12:36
Jæja þá er loksins komið að því að maður komi með nýjar frásagnir frá Baldvini Njálsyni GK 400.
En þeir sem ætla að kvarta í mér yfir því að ég hafi ekki skrifað neitt nýlega þá vil ég
vinsamlegast beina ykkur að honum Jóni, eða Nonni IngiBjössi eins og hann er víst kallaður í dag
(fáránlegt nafn). Kappinn skelti sér nefnilega á lóðarí um páskana og var vant við látinn, en þetta
ku víst vera lögleg afsökun þannig að þetta sleppur.
En það hefur nú annsi margt drifið á daga okkar hér síðustu daga, það hefur verið botnlaus vinna en
það breytir samt ekki því að menn geta lyft sér upp annað slagið, einnig geta umræðurnar hérna um
borð orðið ansi skrautlegar annaðslagið, t.d. duttum við ungu strákarnir niður á það að ræða um
gamalt sjónvarpsefni og þá skyndilega mundi ég eftir kíklópunum sem var fótboltaskrípó og man ég að
ég horfði dolfallinn á það á sýnum tíma, einnig töluðu sveita strákarnir um eitthverja þætti sem ég
kannaðist ekkert við en það er alveg skiljanlegt þeir eru frá Dalvík og Siglufirði, meina
sjónvarpsefnið hlýtur að vera eftirá á svona plássum. Víst að ég er byrjaður að tala um Siglufjörð
þá vil ég deila einu með ykkur, það er nánast hver einasta gata á Siglufirði einstefnugata og þegar
ég var þar á sjó þá átti maður í stökustu vandræðum með það að komast úr bænum. En þetta var bara
soldið sem lá mér á hjarta.
En eins og allir vita þá gengu páskarnir í garð fyrir nokkrum dögum síðann og þótt undarlegt megi
virðast þá eru líka helgidagar á sjónum en samt tekur maður ekkert mikið eftir því, vegna þess að
maður er að vinna alla daga sama hvort að það sé páskadagur eða mánudagur. Að vísu fengum við
hverja steikina á fætur annarri að snæða og var það vel þegið og menn skófluðu vel í sig, einnig
fengum við páskaegg og sumir voru svo æstir þegar þeir fengu páskaeggið að þeir átu það allt í einu
og eins og flestir vita þá getur það farið illa í maga og varð raunin sú, drengur að nafni Geiri
komst að þessu því að kauði var að eigin sögn í korter að slátra einu eggi og innihaldinu, nema
karamellur vegna þess að hann borðar víst ekki svoleiðis góðgæti, hann hefði nú samt alveg getað
slafrað þeim í sig í leiðinni hefði eflaust engu breytt. Reyndar skil ég hann samt vel, vegna þess
að þegar ég loksins opnaði mitt egg þá kláraði ég það á örskotstundu, reyndar fór það vel í maga
hjá mér og tel ég það vera vegna þess að ég er í nokkuð góðri æfingu að éta súkkulaði, maður er
aðeins búinn að missa sig í sjoppunni hérna um borð, en maður má nú samt leyfa sér eitthvað víst að
maður er einangraður í 5vikur.
Daði og Siggi eru alveg hættir að borða eitthvað óvanalegt, en ég er að vísu búinn að toppa þá, ég
beit í hjarta og svo beit ég einnig í hrognapoka og fékk fyrir það 20strik í sjoppunni (sem er
gjaldmiðillinn hérna um borð, strikið er 70kall að mig minnir). Get samt sagt ykkur það að hrognin
voru ekkert sérstök, hjartað var betra, held samt að hrognin hafi verið gömul eða eitthvað, en það
breytir engu núna þetta er búið. Það var eitthver sem stakk uppá því að við myndum bíta í sæbjúga,
held að það hafi verið litli bróðir minn sem skrifar undir nafninu burger, en ég hef bara ekki séð
eitt einasta sæbjúga allann túrinn en verð ekki lengi að láta drengina spreyta sig á því.
Viti menn það eru líka celebs á sjónum. Þannig er mál með vexti að ég og einn annar fórum í
bátsferð á tuðru að ná í stýrimanninn sem skrapp í fermingarveislu og fékk hann far út aftur með
Hrafninum, við skutumst yfir og vorum hífðir um borð og mér fannst ég kannast við einn mann þarna,
haldiði að þetta hafi bara ekki verið Kalli Bjarni sem er fyrst idol stjarna okkar íslendinga,
hefði ég vitað þetta að hann væri þarna um borð þá hefði ég tekið með mér blaðasnepil og skriffæri
og beðið kauða um eiginhandaráritun og beðið um eitt lag eða svo, en veit það þá bara næst.
Þá aðeins að kommentunum,
Árni minn ég get nú samt alveg gert mér ferð heim til föður þíns og bjargað þessu meina ef þetta er
nú orðið eitthvað strjálbýlt á kollinum á kallinum þá er bara um að gera að kippa þessu öllu af,
það er miklu meira töff hehe.
Er búinn að skila kveðjunni frá Steina og það var einn gaur hérna sem brast bara í grátur þegar ég
skilaði kveðjunni og kom það uppúr krafsinu að það var ekki af söknuði eins og við héldum heldur
var hann með þér á laugum og sagði að þú hafir alltaf verið að leggja hann í einelti og að lyfta
honum uppá hina ýmsu hluti. En þeir báðu samt heisla þér á móti, held að það sé bara hálf áhöfnin
hérna sem hefur verið á Hrafninum.
Svo að lokum þá skal ég lofa þér því Sigurbergur að það fyrsta sem ég geri þegar ég kem heim verður
að raka af þér hárið, en það er aldeilis að þú viljir líkjast stóra bróður, flott hjá þér ;)
Þá er víst kominn tími á að halla sér aðeins áður en næsta vakt hefst, en það eru bara 12dagar
eftir þannig að þetta er farið að styttast allsvakalega.

                      Kveðja Einar Pé

Brælan

Rakstur á skippernum

09. apríl 2007 klukkan 22:57
Sælir kæru landsmenn.
Nú hef ég frá ansi skemmtilegu atviki frá að segja, þannig er það að til mín leitaði háttsettur
maður hér um borð og bað mig um að raka af sér hárið, og að sjálfsögðu skorast maður ekki undan
þegar til manns er leitað og var ég rétt í þessu að ljúka við að raka þennann unga mann hehe, en
þetta var hann Þorsteinn skipstjóri sem leitaði til mín og hafði ég bara nokkuð gaman af því að
framkvæma þetta, það eru ekki margir sem geta sagt að þeir hafi rakað hárið af skipstjóranum sínum
en það get ég hins vegar.
Annars er allt komið í sama farið hér um borð eftir að við fórum í land í gær til að landa aflanum
sem var kominn og var það ansi ljúft að fá einn frídag svona til að "hlaða" batterýin aftur en
allavega þá var þetta mjög kærkomin hvíld, ef hvíld skildi kalla.
Siggi og Daði hafa ekki lagt sér til munns neitt óvanalegt undanfarið en vona ég að það fari nú að
koma að því, væri t.d. gaman að sjá þá taka bita af gómsætri þorsklifur eða hrognapoka og sjá
hvernig þeir myndu höndla það félagarnir. Annars hef ég eina smá sögu af þeim að segja, þeir
skelltu sér í land í gær eins og við allir og voru eitthvað að stússast í bænum en ákváðu svo um
kvöldið að skella sér í bíó klukkan 8, þeir ákváðu það í sameiningu að skella sér á Turtles mynd
sem er nýkomin í bíó (veit ekki afhverju í ósköpunum þeir völdu hana) settust þeir niður og ætluðu
að fara að horfa en neinei haldiði að þeir hafi ekki bara sofnað þegar myndin var rétt byrjuð og
vöknuðu í hléinu og fóru út, þannig að þeir borguðu 900kall fyrir að leggja sig í bíósal, maður
hefur nú alveg gert margt gáfulegra fyrir 900kall, reyndar líka margt heimskulegra.
Í augnablikinu hef ég ekkert meira að segja ykkur frá en hef sterkann grun um að næsta færlsa verði
aðeins kryddmeiri, þannig að fylgist vel með.
                   Kveðja EinarPé

Brælan

Brjálað að gera

02. apríl 2007 klukkan 10:21
Sælir kæru lesendur og vinir.
Ég vil byrja á því að útskýra hver vegna ég hef ekkert skrifað hér nýlega, þannig er mál með vexti
að það er bara búið að vera brjálað að gera og ég hef frekar kosið það að sofa heldur en að eyða
tíma fyrir framann tölvuskjáinn, enda hefur það komið á daginn að ég hef sofið yfir mig allnokkru
sinnum á seinustu dögum, en það kemur fyrir á bestu bæjum skal ég segja ykkur.
Ég sá það á commentunum sem hann Jón útsendari brælunnar á fastalandinu, sendi mér að hátt settir
menn innan Nesfisksamsteypunnar eru að skoða þessa hugrenninga mína (hefði þá kannski ekki átt að
segja að ég væri búinn að vera að sofa yfir mig) því vil ég nota tækifærið og byðja þá um nýtt
sjónvarp í borðsalinn hehe, meina það er ekki mönnum bjóðandi að horfa á enska boltann eða
meistaradeildina í 28"tommu sjónvarpi sem er 2metra háum skáp og í 5metra fjarlægð, alltaf að vera
bjartsýnn sjáiði til. Einnig voru sumir einstaklingar hér um borð að biðja um nuddpott, ljósabekki,
bar og súlu, en við skulum nú bara byrja á sjónvarpinu. En þetta eru bara svona vinsamleg tilmæli
sem ég ákvað að fleygja hér fram útaf ég sá að þessir menn eru að fylgjast með þessari síðu, vil
líka minna á að þetta er mest allt sagt í glensi, en öllu glensi fylgir eitthver alvara en samt, æi
þið vitið hvað ég meina. Betra að hafa vaðið fyrir neðann sig þannig að það fari nú ekki allt í
háaloft.
En þá að því sem hefur gerst hér um borð síðann seinast, byrjum á því að tala um Daða og Sigga,
eins og þeir sem hafa lesið áður hérna vita þá borðaði Daði bita úr hjarta sem var í lúðu, en Siggi
gerði sér lítið fyrir og svaraði í sömu mynd og standa leikar því jafnir. Ég veðja samt frekar á
Daða í þessari keppni þar sem hann er í 5túr í röð og þá eiga menn það til að vera ekki með alla
heilastarfsemi í gangi, eins og hann sagði sjálfur þá er hann búinn að komast að því að í 5túr þá
fá menn "eat every thing syndrome" (held að þetta sé skrifað svona, erlend tungumál eru ekki mín
sterka hlið). En ef fólk hefur eitthverja hugmynd um það hvað þessir drengir eiga að leggja sér til
munns næst þá eru allar ábendingar vel þegnar.
Fólk hefur líklegast tekið eftir því að ég hef ekkert talað um matinn, það er mjög einföld skýring
á því, ég hef bara sofið yfir mig, nema áðann þá var kjöt og bearnies, dem hvað þetta er góð sósa,
gæti notað hana útá coco puffs, cheerios, honey nut cheerios, cornflakes blönduna mína þá væri
þessi morgunverðar blanda fullkomnuð, en þessi blanda af öllum þessum morgunkornum er algjör snilld
og hvet ég alla til að prófa hana, en passið ykkur á því að hafa coco puffsið neðst svo að bragðið
komi í mjólkina, notið bláa mjólk og ekki skemmir að setja smá skettu af rjóma með þessu einnig.
Núna eru einungs 21 dagur eftir af þessum túr, sem segir okkur það að ég á 41vakt eftir og 82pásur,
þannig að þetta er farið að styttast í annann endann.
En núna er mál að skella sér upp og taka úr þurkaranum og ganga svo til náða og vippa sér uppí
kojuna og koma sér vel fyrir.
Þangað til næst.
Einar Pé

Brælan

Maltesers og kók

29. mars 2007 klukkan 08:08

Við bjóðum góðann dag héðann af hafinu.
Vil byrja á því að óska honum föður mínum til hamingju með daginn, kappinn er orðinn 43ára, á ég
kannski að sleppa því að nefna að hann sé orðinn svona gamall???? NeiNei látum það bara flakka, En
til hamingju með daginn pabbi minn. Hann er víst orðinn fastagestur hér á þessari síðu, hélt því
meira að segja fram að það væri ekki frambærilegt að vera loðinn á afturendanum, en ég er á öðru
máli og er ég nokkuð viss um að hann Árni Þór Ármannsson sé mér hjartanlega sammála.
Matseðillinn í dag er í styttra lagi, þar sem mér tókst að sofa yfir mig í hádeginu og náði ekki að
fara upp og næra mig, en til allrar hamingju átti ég gos og maltesers í klefanum og skóflaði því í
mig, meðann ég var að því þá flaug mér í hug nokkuð sem gæti verið áhugavert að prófa og það er að
éta þetta eins og coco puffs, semsagt setja maltesers í skál og hella gosi yfir, þetta er nokkuð
freystandi, það eina sem ég hef áhyggjur af er að maltesersið flýtur nokkuð auðveldlega, veit það
fyrir víst því ég hef athugað það, og kemst þess vegna lítið magn af því í skálina í einu, en ég
læt ykkur vita hvernig þetta fer ef ég prófa þetta.
En annars er það að frétta héðann frá Baldvini Njálsyni að við erum búnir að vera að fiska nokkuð
vel af karfa, sem úthefst á latínu sem SEBASTES MARINUS og á ensku einfaldlega REDFISH, þannig að
það er búið að vera stanslaus vinnsla seinustu daga og veðrið leikur við okkur þessa stundina sem
betur fer. En það sem er það versta við karfavinnsluna er það að maður á það til að stinga sig á
göddunum á kvikindinu og afrekaði ég það í nótt að stinga mig á einum slíkum, er það reyndar
nokkurn veginn daglegt brauð en í þetta skiptið stakk ég mig á tánni, núna velta sumir eflaust
fyrir sér hvernig ég fór að því, þannig er mál með vexti að ég var að reyna að ná gommu af karfa
niður úr einu kari og ákvað að sparka bara í kvikindin, en það reyndist ekki vera mjög gáfuleg
ákvörðun vegna fyrr greindra afleiðinga.
Svo verð ég að segja ykkur frá einu skemmtilegu atviki, það er einn gaur hér um borð sem er frá
siglufirði og kýs að kalla sig Daði, en ég er samt ekki alveg viss um að það sé hans rétta nafn,
grunar að hann sé einnig útsendari frá ráðuneytinu og komi fram undir dulnefni, en hann og annar
náungi að nafni Siggi Bess eins og ég kýs að kalla hann voru að gera að nokkuð myndalegri lúðu
(fyrir þá sem ekki vita þá felst verknaðurinn að gera að í því að taka innyflin úr fiskinum) og
þegar þeir taka hjartað úr lúðunni þá slær það ennþá og þá spyr Daði, Sigga að því hvað hann fær ef
hann bítur stykki úr hjartanu, Siggi bíður 10strik í sjoppunni og haldiði að drengurinn hafi bara
ekki tekið líka þennann myndarlega bita úr hjartanu og tuggði af hjartanslist (góð tenging), og var
með blóð á öllu andlitinu og aftur að eyrnasnepplum, þannig að það er nokkuð ljóst að mönnum dettur
ýmislegt í hug hér um borð.
En nú er nóg komið í bili og mál að skella sér í sturtu og skola af sér hreystrið og slorið eftir
daginn.
                                  Kveðja Einar Pé

Brælan

Fótboltamót

28. mars 2007 klukkan 00:18

Sælir kæru lesendur.
Eftir því sem ég kemst næst þá er þriðjudagur í dag, reyndar var eitthver reikistefna hér um borð
áðann hvaða dagur er, alveg kostulegt það er rétt búin rúm vika af túrnum og menn vita varla hvað
þeir heita hvað þá hvaða dagur er.
Þá eru það fréttir af matseldinni fyrir þá sem vilja fylgjast með því. Þegar ég vaknaði á hádegi þá
var boðið uppá hakk og spaghetti, bragðaðist það svo sem þokkalega, en ég þoli ekki þegar það þarf
alltaf að troða eitthverju grænmeti í allann mat, alveg óþolandi (Bjössi kokkur ef þú sérð þetta þá
hef ég ekkert útá þig að setja, en mátt samt alveg sleppa þessu grænfóðri stöku sinnum) nartaði
aðeins í þetta en ákvað síðann að kjósa frekar gosdrykk og princepolo og það klikkar ekki frekar en
fyrridaginn, og nú fyrir rúmum 23mínutum þá var ég endavið að skófla í mig steiktum skötusel og var
það hörkumáltíð skal ég segja ykkur og hvet ég alla sem hafa ekki smakkað skötusel að gera það hið
snarasta því þarna er á ferðinni einn besti matfiskur sem maður getur hugsað sér.
Núna ætla ég að snúa mér að því að svara þessum commentum aðeins. Fólk er greinilega alveg að
misskilja afhverju ég missti næstum af bátnum, þetta var allt skipulagt af ráðuneytinu, ég er í
mjög svo leynilegu verkefni að athuga viðhorf yfirmanna til undirmanna sem eiga það til að taka
misgáfaðar ákvarðanir, þannig að þetta er allt skipulagt sjáiði til. Á að skila af mér skýrslu
þegar ég kem í land en það er nú samt ekkert á næstunni.
En þar sem feita fjörið virðist vera tíður gestur á þessari síðu þá flaug mér í huga staka, og
hljómar hún eitthvað á þennan veg.

Sumum finnst það alveg kjörið
að láta feita fjörið
éta smjörið
er hann kemst í ölið.

Ekki taka þetta nærri þér Palli minn, maður á það bara til að láta hugann reika soldið hérna um
borð og detta ýmislegt í hug.
En núna á næstu dögum fara að hefjast æfingar hér um borð fyrir fótboltamótið á sjómannadaginn sem
er á næsta leiti eða svo, menn taka þetta mót mjög svo alvarlega og kemur ekkert annað en sigur til
greina, og að sjálfsögðu er ég tittlaður sem sterkasti maðurinn í liðinu, hef verið að segja þessum
mönnum ýmsar sögur af mínum knattspyrnuferli og að sjálfsögðu fegrar maður hlutina örlítið en samt
ekkert mikið, en ég er samt staðráðinn í því að standa undirnafni, meina það er ekki hver sem er
sem hefur skorað mark í leik um 3sætið á Esso mótinu á akureyri, ég á eftir að lifa mikið á því
afreki skal ég segja ykkur. En eins og sönnum sjómönnum sæmir þá verður auðvitað ekki notað vatn
til að svala þorsta leikmanna heldur verður boðið uppá dýrindis mjöður og við það aukast líkur
mínar á því að standa mig vel, því að maður verður jú ansi hugmyndaríkur við þær aðstæður og gæti
átt það til að tækla einn eða tvo mótherja en það kemur allt saman í ljós. En þessu tengt þá vantar
okkur sjúkraliða fyrir mótið því að sumir liðsmenn eru aðeins komnir yfir sín sokkabandsár en eiga
það til að gleyma því stundum. Ef það vill svo skemmtilega til að eitthver í þessari stétt les
þetta þá má hann endilega skrifa eina línu eða svo ef viðkomandi er til í að liðsinna okkur.
En nú er verið að hífa trollið og ætla ég að ná myndum af því til að sýna ykkur landkröbbum hvernig
þetta gegnur fyrir sig.
                                              Kveðja Einar Pé

Brælan

Baldvin Njálsson Barber Shop!

26. mars 2007 klukkan 16:27
Sælir kæru lesendur.
Jæja þá er það færsla númer 2 á þessari síðu sem á eftir að hefja blogg heiminn uppí áður óþekktar
hæðir.
Það verður fastur liður hjá mér að byrja flestar færslur á því að tala um matinn, því það er jú
hann sem heldur í manni lífinu oft á tíðum, eða svo vilja allavega gárungarnir meina. Á sunnudögum
er það fastur liður um borð í togurum sem þessum að hafa steik í báðum máltíðum og var dagurinn í
gær engin undantekning, þegar maður náði loksins að rífa sig framúr kojunni í hádeginu þá beið
eftir manni þessi dýrindismáltíð, nautalundir (eða allavega eitthverjar lundir) og bearnies sósa og
þeir sem þekkja kauða vita að ég slæ ekki hendinni á móti 2-3 lítrum af sósunni góðu svo vara
auðvitað ís í eftir rétt eins og sæmir svona herramannsmáltíð, í seinni máltíðinni bauð svo
kokkurinn uppá heila svínslöpp og stökkapuru í kaupbæti sem maður úðaði auðvitað í sig með bestu
list. Yfirleitt eftir svona veislur er afgangur sem maður nartar svo í þegar maður vakna á miðnætti
og hoppaði ég framúr kojunni eins og ég ætti lífið að leysa og dreif mig uppí borðsal því að nú
átti sko að sitja einn af bearnies-inu en þá varð ég fyrir andlegu áfalli, haldiði ekki að sósan
hafi verið uppurinn........ ég er búinn að vera alla vaktina að svekkja mig á þessu og á ég eflaust
eftir að fá martröð á eftir þar sem sósan góða á eftir að leika eitt af aðalhlutverkunum.
En nú er nóg komið af matseðlinum, í dag er búið að vera þokkalegasta veður og ákvað ég þá að grípa
tækifærið og klippa mig, sem ég geri í öllum túrum og þar sem túrarnir eru jú 5vikur þá eiga
klippingar það til að vera ansi skrautllegar og oft hefur mér verið hótað að mér yrði ekki hleypt í
land ef ég laga þær ekki, en svo að ég skýri nú klippinguna núna aðeins í örfáum orðum, Mr.T er
kauði sem skartaði góðri klippingu og ákvað ég að klippa mig til heiðurs hans í þetta skiptið og
skeggið í stíl, en þið kæru lesendur fáið að sjá þetta betur þegar ég kem í land og set inn myndir
úr túrnum og af klippingunni sem og eldri klippingum, jafnvel að maður skelli í eitt klippihorn eða
svo. Einnig ætlar Jón minn kæri wen að taka niður pantanir fyrir þá sem vilja fá klippingu hjá
Baldvin Njáls barber shop, nú þegar eru nokkrir einstaklingar hér um borð búnir að panta tíma og
geng ég í það verk þegar tími gefst til.
Nú er ein vika liðin af túrnum og ekki nema 4eftir sem eru 28dagar fyrir þá sem eru litblindir. Þó
að það sé aðeins vika liðin þá er nú þegar farinn að örla aðeins á geðveikinni hjá sumum mönnum og
verður fróðlegt að fylgjast með viðkomandi einstaklingum þegar fram líða stundir.
Ég vil enda þessa færslu á því að óska honum Veigari Þór Helgasyni til hamingju með að vera kominn
í fullorðinna manna tölu, núna má hann Ragnar Björn vinur minn, sem vill svo skemmtilega til að
hann er bróðir hans Veigars, fara passa sig á kauða því að eins og allir vita þá verður maður mjög
svo rammur af aflli er þessi tímamót í lífi mans eru yfirstaðin.
Kveðja af ballarhafi.
Einar Pé.

Brælan

Beikon og Bræla

24. mars 2007 klukkan 17:17

Jæja sælir kæru lesendur, við mátarnir Einar Pé og Jón Ingibjörn ætlum okkur að stofna þessa síðu til þess að skemmta fólki með sögum sem að gerast um borð á Baldvini Njálssyni, sem að er togarinn sem Einar er á og ég Jón er vonandi að komast á.. Ætlum við að blogga frá Baldvini og senda inn hérna á síðuna á meðan að við erum á hafi úti... En fyrsta bloggið kemur nú frá Einari sem að er núna í túr á Baldvini í hauga brælu og fínheit..



Jæja góðir hálsar núna er sko dagur mikillar gleði hér um borð, þannig er nú mál með vexti að í
dag laugardag er fyrsti í beikon, og eru það uppáhaldsdagarnir hjá mér hér um borð og reyndar
fleirri áhafnarmeðlimum, en það er alltaf eitthver galli á gjöfum jarðar, jújú og þannig er það
líka í þetta skiptið. Eins og kunnugt er þá er ég staddur á mesta brælu skipi flotans, svo virðist
sem við eltum uppi þau veiðisvæði þar sem veðrið er hvað verst hverju sinni, og veðrið er það slæmt
nuna að minn ástsæli kokkur treystir sér ekki til að steikja frannskar í þessum veltingi og skil ég
hann reyndar mæti vel þar sem djúpsteikingarfeiti á flísum er ekki uppá marga fiska og hefur oft
verið haldin keppni í listdansi á djúpsteikingarfeiti á flísum hér um borð og yfirleitt fara þeir
með sigur af hólmi sem eru vel í holdum óg orsakast það af því að þeir fljúga strax á hausinn og
veltast um á gólfinu eins og beljur á svelli og lítur það út eins og að þeir séu að framkvæma hinn
undurfagra breakdans semsagt snákinn og fleirri góð trix og eru þeir búnir að uppgötva nýja
hreyfingu sem ég kýs að kalla blöðruselinn en nóg af þessari steikingarfeiti. Ég náði nú samt að
bjarga máltíðinni með vænni slummu af kokteilsósu og bragðaðist það bara nokkuð vel, líka gott að
fá svona "hollann" og "næringarríkann" mat rétt fyrir svefninn, annars er það að frétta af mér
sjálfum að ég er kominn vel á veg að ná að skoða allt nýja 18+ efnið hér um borð og eru það hvorki
meira né minna en 54gb sem ég tel nú vera slatta, einnig hefur mér tekist að horfa á 3bíómyndir og
að sofna í sófanum sem er það ljúfasta sem getur hent mann hér um borð. Núna hugsa líklega flestir
með sér, hva er ekkert að gera á þessum dalli, jú það er nóg að gera en í svona brælum er það
erfiðasta sem maður gerir er það að reyna að sofna í kojunni sinni því að maður veit aldrei hvenar
dallurinn ákveður að taka eina af sínum góðu dýfum og kasti manni úr kojunni og tala ég af reynslu
þegar ég segi að það er ekki huggulegt að lenda á gólfinu úr kojunni hvað þá úr efri koju, ég flaug
úr neðri koju og var ég nokkuð laskaður á afturendanum en samt tel ég að rassahárin hafi náð að
draga aðeins úr fallinu en það er bara ágiskun hjá mér. En núna set ég það í hendur á mínum sérlega
aðstoðarmanni í landi að koma þessu á veraldarvefinn og koma síðunni af stað sem á eftir að
tröllríða eitthverju datt ekkert í hug.
En þangað til næst skipti.
                      
                      Einar Pétur.

Brælan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn